Álitsgerðir
Lögmenn Mandat hafa viðamikla reynslu af gerð álitsgerða á þeim sviðum sem þeir hafa sérþekkingu á.
Upplýsingar veita:
Erfðir og dánarbú
Lögmenn stofunar veita þá lögfræðiþjónustu sem nauðsynleg er í kjölfar andláts. Í þessu felst m.a. gerð erfðaskráa, einkaskipti dánarbúa sem og skiptastjórn við opinber skipti dánarbúa.
Upplýsingar veita:
Fasteignakaup og leigusamningar
Lögmenn stofunnar veita ráðgjöf vegna fasteignakaupa og hafa mikla reynslu af rekstri mála sem tengjast fasteignakaupum , til dæmis vegna galla og frágangs vegna uppgjörs og efnda kaupsamninga. Að sama skapi veita starfsmenn stofunnar þjónustu á sviði leiguréttar, hvort sem það er við gerð leigusamninga eða framfylgni þeirra.
Upplýsingar veita:
Félagaréttur og fyrirtækjaráðgjöf
Lögmenn stofunnar veita alhliða þjónustu og ráðgjöf á sviði félagaréttar og þeim sviðum er tengjast rekstri fyrirtæka, hvort sem um ræðir stofnun eða slit félaga, hækkun hlutafjár,stjórnar og/eða hluthafafundi, breytingu á samþykktum, kaup eða sölu félaga.
Þá veita lögmenn stofunnar jafnframt þjónustu við hvers kyns samningagerð fyrir fyrirtæki.
Upplýsingar veita:
Gjaldþrotaréttur
Lögmenn stofunnar hafa afar viðtæka og verðmæta reynslu á sviði gjaldþrotaréttar. Stofan tekur að sér skipti þrotabúa, kröfulýsingar í þrotabú, endurskipurlagningu félaga, aðstoð við nauðasamningsumleitanir og greiðslustöðvun. Jafnframt veitir stofan ráðgjöf vegna álitaefna og úrlausnarmála sem tengjast greiðsluerfiðleikum fyrirtækja.
Upplýsingar veita:
Hjúskapur, sambúð og forsjármál
Lögmenn stofunnar veita þjónustu á þeim sviðum sem tengjast hjúskapi fólks og sambúð og eru fólki innan handar hvort sem það er vegna gerð kaupmála, sambúðarsamninga eða aðstoð við skilnað og sambúðarslit. Jafnframt hafa lögmenn stofunnar víðtæka reynslu við úrlausn forsjármála í kjölfar skilnaðar og sambúðarslita.
Upplýsingar veita
Hugverkaréttur
Lögmenn stofunnar veita þjónustu á sviði hugverkaréttar og veita aðstoð við samningagerð m.a. vegna útgáfusamninga um allar tegundir hugverka. Jafnframt sinna lögmenn stofunnar rekstri dómsmála vegna brota á höfundarrétti.
Upplýsingar veita:
Innheimtur
Mandat tekur að sér innheimtu krafna bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Lögð er áhersla á trausta, skjótvirka og árangursríka þjónustu á þessu sviði.
Upplýsingar veita
Málflutningur
Lögmenn stofunnar hafa áratuga reynslu af flutningi dómsmála bæði fyrir héraðsdómi og Hæstarétti, sem og fyrir gerðardómi og Félagsdómi.
Skaðabóta- og vátryggingaréttur
Lögmenn stofunnar búa yfir einstakri reynslu á sviði skaðabóta- og vátryggingaréttar og er þetta einn af grunnþáttum starfseminnar. Lögmenn stofunnar hafa aðstoðað fjölda einstaklinga við að sækja bætur vegna líkamstjóna af öllum orsökum, svo sem vegna umferða- vinnu og frítímaslysa sem og skaðabóta í kjölfar líkamsárása.
Upplýsingar veita
Stjórnsýsluréttur
Lögmenn stofunnar hafa verðmæta reynslu af rekstri mála fyrir stjórnvöldum, bæði fyrir hönd félagasamtaka og einstaklinga. Að sama skapi hafa lögmenn stofunnar reynslu af setu í úrskurðarnefndum. Þá veitir stofan ráðgjöf og aðstoð vegna kvartana einstaklinga og fyrirtækja til Umboðsmanns Alþingis.
Upplýsingar veita:
Verjendastörf og réttargæsla
Lögmenn stofunnar hafa mikla og fjölbreytta reynslu í verjendastörfumí hvers kyns sakamálum sem og í réttargæslu fyrir þolendur afbrota.
Upplýsingar veita:
Vinnuréttur
Lögmenn stofunnar búa að gríðarmikilli þekkingu og áralangri reynslu í vinnuréttarmálum frá öllum hliðum, hvort sem það er fyrir starfsmenn, atvinnurekendur eða stéttarfélög. Til dæmis vegna gerðar ráðningarsamninga og starfslokasamninga. Einnig hafa lögmenn stofunnar veitt stéttarfélögum ráðgjöf við gerð kjarasamninga. Lögmenn stofunnar hafa gætt hagsmuna starfsmanna í vinnudeilum og í fjölda dómsmála bæði fyrir héraðsdómi og Hæstarétti.
Upplýsingar veita:

