Mandat

Ránargötu 18, 101 Reykjavík.
Sími 511-1190
fax 511-1195
tölvupóstur: mandat@mandat.is

Fyrirtækið

Mandat lögmannsstofa rekur upphaf sitt til ársins 1975 er Arnmundur S. Backman hrl. hóf rekstur lögmannsstofu í Reykjavík. Var hann einn um umfangsmikinn rekstur lögmannsstofu með allmarga starfsmenn allt þar til Ástráður Haraldsson, hrl. kom að rekstri stofunnar í upphafi níunda áratugarins. Síðar bættist Björn L. Bergsson hrl. við og var stofan rekin undir heitinu Lögmenn Hafnarstræti 20 um stund. Stofan hefur verið rekin undir heitinu Mandat frá árinu 2003. Eigendur stofunnar eru nú sex talsins. Jafnframt er Benedikt Ólafsson hrl. í samstarfi við stofuna og rekur lögmannsstofu sína undir merkjum hennar.